Yfirlýsing frá læknaráði og hjúkrunarráði Landspítala
Læknaráð og hjúkrunarráð Landspítala minna á að hlutverk Alþingis og sérstaklega fjárlaganefndar er að tryggja að tekjustofnar ríkisins dugi fyrir sameiginlegri grunnþörf og þjónustu samfélagsins.
Fagleg þjónusta Landspítala, lækningar, hjúkrun, endurhæfing og rannsóknir byggja á því að fjárveitingar dugi fyrir því hlutverki sem þjóðarsjúkrahúsinu er ætlað að gegna. Rekstur Landspítala hefur verið í járnum undanfarin ár og fjármagn til uppbyggingar og endurnýjunar innviða hans naumt skammtað og í mörg ár nánast alveg skorið niður. Á þessu þarf að verða breyting.
Læknaráð og hjúkrunarráð Landspítala styðja af fullum hug eljusemi forsvarsmanna spítalans til að tryggja fullnægjandi framlög til rekstrar spítalans í fjárlögum ársins 2016 og minna á að taka verður tillit til fjölgunar í hópi aldraðra og aukinnar þjónustueftirspurnar sem vex að meðaltali um 1,7% á milli ára. Ekki verður heldur undan því skotist að sinna viðhaldi og endurnýjun á starfsaðstöðu og húsnæði spítalans, sem vanrækt hefur verið um langt árabil vegna fjárskorts. Ekki verður séð að í núverandi frumvarpi að fjárlögum sé gert ráð fyrir þessum mikilvægu liðum með fullnægjandi hætti.
Fjárveitingar til innviða heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi, þ.e.a.s. endurnýjunar og viðhalds húsnæðis, tækjakaupa og framþróunar hefur undanfarin ár verið með því allra lægsta sem um getur í OECD löndum. Að meðaltali verja OECD löndin 0,5% af VLF sem á Íslandi samsvarar 10 milljörðum króna ár hvert. Ef miðað er við Norðurlöndin, t.d. Danmörku, væru um 14 milljarðar eyrnamerktir þessum lið.
Íslensk stjórnvöld hafa skv. skýrslu OECD varið sem svarar 0,1% af VLF í fjárfestingar í innviðum heilbrigðisþjónustunnar og eru þar í næst neðsta sæti OECD landanna. Lítil sem engin merki eru um að í dag sé gert ráð fyrir breytingum á þeirri þróun eða framlögum stjórnvalda til málaflokksins. Slíkt er áhyggjuefni og læknaráð og hjúkrunarráð Landspítala hvetja til þess að sú vegferð verði strax tekin til endurskoðunar.
Læknaráð og hjúkrunarráð Landspítala leggja traust sitt á að nefndarmenn í fjárlaganefnd og svo Alþingi allt hlutist til um það að fjárveitingar komandi árs tryggi að hægt sé að reka Landspítala í samræmi við þær kröfur og hlutverk sem honum er ætlað.
Reykjavík 30. nóvember 2015
F.h. læknaráðs
Reynir Arngrímsson formaður
F.h. hjúkrunarráðs
Guðríður K. Þórðardóttir formaður