Tilkynning:
Vegna RS-veiru sýkingarhættu eru allar heimsóknir barna yngri en 12 ára bannaðar á eftirfarandi deildum:
- Vökudeild
- Fæðingarvakt
- Meðgöngu- og sængurlegudeild
Jafnframt er óskað eftir að heimsóknir annarra séu takmarkaðar.
Þetta eru ráðstafanir sem gripið er til þegar RS-vírus greinist eins og nú er komið dæmi um.
Hafið samband við starfsfólk deildanna ef upp koma spurningar vegna þessa.