Yfir 200 stjórnendur á Landspítala komu saman 24. nóvember 2015 til að leggja grunn að framtíðarstefnu spítalans. Myndaðir voru vinnuhópar og fóru þeir yfir drög að nýjum stefnupíramída og starfsáætlun með lykiláherslum fyrir árið 2016. Þá var einnig farið yfir hvaða árangursvísar verða nýttir fyrir spítalann. Margar góðar hugmyndir komu fram á fundinum sem eru gott innlegg í nýja stefnu sem áætlað er að verði tilbúin til kynningar í lok desember.