Vinna við gerð 70 nýrra bráðabirgðabílastæða framan við aðalbyggingu Landspítala Hringbraut hófst miðvikudaginn 18. nóvember 2015.
Áætlað er að búið verði að malbika stæðin hálfum mánuði síðar og verkinu öllu ljúki í síðasta lagi 15. desember.Þessi nýju bráðabirgðabílastæði koma í stað jafn margra bílastæða sem verður lokað milli kvennadeilda og K-byggingar þegar jarðvegsvinna hefst þar nálægt mánaðamótum nóvember og desember til að undirbúa byggingu nýs sjúkrahótels.
Vinnusvæðið vegna gerðar bráðabirgðabílastæðanna verður afmarkað en engum umferðarleiðum lokað, hvorki fyrir akandi né gangandi. Lágmarksáhrif verða því á starfsemi spítalans vegna þessara framkvæmda. Áhrifin felast aðallega í ferðum vörubíla til og frá vinnusvæði.
Með því að gera þessi nýju bráðabirgðabílstæði verða áfram í boði gjaldskyld stæði nærri spítalanum þótt síðar komi til tímabundinnar lokunar bílastæðanna við kvennadeildir og K-byggingu.
Smella á myndina til að stækka hana