Hildur Helgadóttir hjúkrunarfræðingur tók við starfi hjúkrunardeildarstjóra á lungnadeild A6 frá 9. nóvember 2015 til eins árs. Hildur lauk prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ 1985 meistaranámi í hjúkrun frá University of Calgary 1989 og meistaranámi í verkefnastjórnun frá verkfræðideild Háskóla Íslands í júní 2007.
Starfsvettvangur Hildar hefur lengst af verið á sjúkrahúsunum í Reykjavík; fyrst Borgarspítala, þá Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Ríkisspítölum og Landspítala-háskólasjúkrahúsi þar sem hún veitti lyflækningadeild A7 forstöðu frá 1998 til 2003. Þá tók hún við starfi hjúkrunarforstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Hildur var ráðin innlagnastjóri Landspítala frá 1. september 2007 og gegndi því starfi þar til hún tók við starfi verkefnastjóra á verkefnastofu þann 1. júlí 2012. Hildur hefur víðtæka klíníska reynslu, stjórnunarreynslu og kennslureynslu en hún kenndi um árabil við hjúkrunarfræðideild HÍ og við heilbrigðisdeild HA. Alda Gunnarsdóttir hefur látið af störfum sem deildarstjóri að eigin ósk en mun starfa áfram við spítalann.