„Bráðveikir á nýjum spítala“ er þema "Bráðadagsins 2016" sem verður 4. mars að Hótel Natura.
Óskað er eftir ágripum um rannsóknir og verkefni sem æskilegt er að tengist þema dagsins.
Ágrip geta fjallað um bráð veikindi innan sem utan sjúkrahúsa, umhverfi og öryggi sjúklinga eða verkferla í bráðaþjónustu.
Sérstaklega er óskað eftir kynningum um rannsóknarniðurstöður og verða slík ágrip ritrýnd og birt í fylgiriti Læknablaðsins.