Inga Hlíf Melvinsdóttir, kandidat á Landspítala, flutti fyrirlestur um faraldsfræði ósæðarflysjunar í brjóstholi á Íslandi á árlegu þing samtaka bandarískra hjartalækna sem nú stendur yfir í Orlando í Flórída. Þingið er eitt stærsta læknaþing í heimi en það sækja sækja hátt í 20 þúsund manns.
Rannsóknin er einstök þar sem hún nær til heillar þjóðar, bæðl sjúklinga sem fóru í aðgerð og þeirra sem ekki náðu lifandi inn á sjúkrahús. Um er að ræða rannsókn sem Inga hefur unnið að meðfram læknanámi síðustu tvö ár og hefur aðalleiðbeinandi verið Arnar Geirsson hjartaskurðlæknir, og aðstoðarleiðbeinandi Tómas Guðbjartsson prófessor. Óvenjulegt er að læknanemar og kandídatar fái tækifæri til að kynna rannsóknir sínar í fyrirlestri á American Heart.
Með Ingu á myndinni er Martin Ingi Sigurðsson sem er að ljúka sérnámi í svæfinga- og gjörgæslulækningum við Brigham and Women's sjúkrahúsið í Boston. Hann kynnti einnig rannsóknir sínar á þinginu við góðan orðstír.
Mynd: Anna Björnsdóttir