Ásta lauk doktorsprófi í vinnusálfræði frá Háskólanum í Minnesota 1997 og hefur síðan starfað sem mannauðsstjóri, háskólakennari og ráðgjafi á sviði mannauðsstjórnunar, meðal annars hjá Háskólanum í Reykjavík, Capacent og Íslenskri erfðagreiningu. Ásta starfaði hjá Háskólanum í Reykjavík á árunum 2001 til 2010, síðustu árin sem framkvæmdastjóri mannauðs og gæðasviðs skólans. Frá árinu 2011 hefur hún starfað sem ráðgjafi hjá Capacent við verkefni á sviði stjórnunar, mannauðsstjórnunar og vinnusálfræði. Ásta er einn af stofnendum CRANET rannsóknaverkefnisins um stöðu og þróun íslenskrar mannauðsstjórnunar, og hún er vottaður verkefnastjóri (IPMA-C) og vottaður styrkleikamarkþjálfi. Frá árinu 2014 hefur Ásta komið að stjórnendaþjálfun á vegum Landspítala með áherslu á teymisvinnu stjórnenda og stuðning við úrvinnslu starfsumhverfiskönnunar, auk þess sem hún hefur aðstoðað við stjórnendaráðningar innan spítalans.
Nýr framkvæmdastjóri mannauðssviðs
Ásta Bjarnadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mannauðssviðs Landspítala. Mannauðssvið er nýtt svið á Landspítala en á síðustu misserum hefur verið lögð stóraukin áhersla á að þróa Landspítala sem góðan og eftirsóknarverðan vinnustað. Starfið er veitt til fimm ára og hefur Ásta störf í desember.