Bílarnir tveir sem Lionsklúbburinn Fjörgyn gaf barna- og unglingageðdeild Landspítala, BUGL, leystu aðra tvo af hólmi sem hafa nýst mjög vel í starfseminni.
Bíll er "... alveg ómetanlegur fyrir okkur og hvað við getum gert með börnunum...“, segir Hrefna Harðardóttir sjúkraliði.
„Það er gott að vita af einhverjum sem er alltaf tilbúinn að styðja mann og alltaf tilbúinn að hjálpa manni...“ segir Linda Kristmundsdóttir, deildarstjóri á BUGL.