Fulltrúi taflfélagsins Hróksins fyrir hönd félagsins og vinaskákfélagsins í Vin kom færandi hendi í gær á geðdeildir Landspítala við Hringbraut. Saman gáfu þessi félög tíu skákborð og taflmenn sem sjúklingar á geðdeildum á Hringbraut geta nýtt sér til dægrastyttingar.
Myndin var tekin við þetta tilefni. Frá vinstri Hrafn Jökulsson, fulltrúi Hróksins, og Helga Sif Friðjónsdóttir, deildarstjóri fíknigeðdeildar.