Fyrstu 78 sjúkrarúmin af þeim 400 sem Arionbanki gaf Landspítala komu á Landakot 2. nóvember 2015.
Fyrstu sjúkrarúmin sem Arionbanki gaf Landspítala koma á Landakot 2. nóvember 2015. Þetta eru 78 af þeim 400 nýjum rúmum sem væntanleg eru, ásamt dýnum. Rúmin eru algjör bylting bæði fyrir sjúklingana og starfsmenn í umönnun þeirra.
Hér lýsir Hildur Helgadóttir verkefnastjóri muninum á gömlu og nýju rúmunum. Alla daga er verið að fara með fólk á skurðstofur, sækja sjúklinga á vöknun og færa fólk frá bráðamóttöku.