Eftirtaldir listamenn koma fram og styrkja verkefnið:
Fjallabræður, Voces Masculorum, Geir Ólafsson, Glowie, KK og Ellen, Páll Rósinkranz, Stefán Hilmarsson, Gissur Páll Gissurarson, Guðrún Árný Karlsdóttir, María Ólafsdóttir, Ragnar Bjarnason og Þóra Einarsdóttir.
Undirleikarar: Jónas Þórir, Matthías Stefánsson og Þorgeir Ástvaldsson.
Kynnir: Gísli Einarsson.
Miðasala hjá N1 Ártúnshöfða og Gagnvegi, Olís Álfheimum og Gullinbrú og á Midi.is.
Aðgöngumiði kostar 4.500 krónur.
Þetta er þrettánda árið í röð sem Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi stendur fyrir tónleikum sem þessum og aðsóknin hefur alltaf verið mikil. Lionsklúbburinn Fjörgyn hvetur alla, sem tök hafa á, að tryggja sér miða á tónleikana og hlýða á tónlistarfólkið í einni stærstu kirkju landsins við mjög góðar aðstæður, um leið og stutt er við gott málefni.