Kjarasamningar milli ríkisins og Starfsmannafélags ríkisstofnana (SFR), Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna voru undirritaði um kl. 5:00 að morgni miðvikudagsins 28. október 2015. Verkfallsaðgerðum þessara félaga hefur þar með verið frestað en þær hafa mikil áhrif á starfsemi Landspítala að undanförnu. Samningarnir fara nú til kynningar og atkvæðagreiðslu í stéttarfélögunum.
Leit
Loka