Ráðstefnan „Hjúkrun í fararbroddi“ verður 14. janúar 2016. Þetta er í annað sinn sem ráðstefnan er haldin. Hún er á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði
sem hvetur kennara, doktorsnemendur í hjúkrunarfræði og ljósmóðurfræði, meistaramenntaða hjúkrunarfræðinga og ljósmæður að senda inn ágrip.
- Útdráttum fyrir erindi, veggspjöld og vinnusmiðjur skal skilað eigi síðar en 1. desember á netfangið margbjo@hi.is.
- Gert er ráð fyrir að hvert erindi taki 15 mínútur og þar af eru 5 mínútur í umræður.
- Útdrættir skulu vera að hámarki 250 orð og efninu skipt niður í inngang, aðferð, niðurstöður/meginmál og ályktanir.