Landspítali leggur áherslu á að tryggja bráðaþjónustu og öryggi sjúklinga eins og frekast er unnt. Heildaráhrif verkfallanna eru óljós en gert ráð fyrir að áhrifa gæti í allri starfsemi spítalans. Þannig munu falla niður allar skipulagðar skurðaðgerðir en bráðum og brýnum aðgerðum verða sinnt. Gert er ráð fyrir miklum áhrifum á dag- og göngudeildir og mun hluta þeirra verða lokað meðan á verkfalli stendur, s.s. göngudeild kvenlækninga, barna og á Grensási. Þá mun legurýmum fækka á bráðadeildum spítalans, þjónusta á öðrum skerðast (s.s. í Rjóðri) og fimm daga deild á Landakoti verður lokað. Svipað eða sama gildir um margar sambærilegar deildir, annað hvort lokun eða takmörkuð starfsemi. Stoðþjónusta spítalans raskast líka verulega komi til verkfalls, svo sem rekstur tölvukerfa og flutninga- og símþjónusta.
Líkur eru á að símkerfi spítalans verði fyrir miklu álagi vegna þess ástands sem skapast komi til verkfalls. Því er eindregið mælst til þess að hringja ekki í aðalnúmer spítalans nema brýna nauðsyn beri til. Minnt er á að neyðarnúmer landsmanna er 112.
Víðtæk áhrif væntanlegra verkfalla á Landspítala
Verði af verkfalli Sjúkraliðafélags Íslands og Starfsmannafélags ríkisstofnana, sem boðað er að hefjist á miðnætti aðfaranótt 15. október 2015, hefur það víðtæk áhrif á starfsemi Landspítala og þjónustu við sjúklinga.