Ályktun stjórnar læknaráðs Landspítala 14. október 2015 um yfirvofandi verkföll sjúkraliða og starfmanna Landspítala í Starfsmannafélagi ríkisisstofna (SFR):
Læknaráð Landspítalans kallar stjórnvöld til ábyrgðar á þeirri röskun sem yfirvofandi kjaradeilur ríkisins og Sjúkraliðafélags Íslands og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu kunna að hafa á starfsemi sjúkrahússins. Á Landspítala starfa nú 562 sjúkraliðar og starfsmenn í SFR eru 1.049. Starfsmenn SFR eru m.a. allir læknaritarar, lyfjatæknar og öryggisverðir.
Störf sjúkraliða og starfsmanna í SFR eru mikilvægir hlekkir í þjónustukeðju spítalans. Stjórn læknaráðs Landspítala harmar að enn þurfi að koma til verkfalla. Ljóst er að boðuð verkföll sjúkraliða og starfsmanna í SFR munu hafa veruleg neikvæð áhrif á úrræði Landspítalans til að sinna þeim er þangað leita. Stjórn læknaráðs hvetur deiluaðila til að ganga nú þegar til samninga svo starfsemi spítalans geti haldið áfram á fullum dampi.