Ályktun stjórnar læknaráðs Landspítala 30. september 2015:
Stjórn læknaráðs Landspítalans fagnar yfirlýsingu heilbrigðisráðherra að unnið sé að varanlegri lausn á málum einstaklinga sem sýktir eru af lifrarbólgu C og bíða eftir lyfjameðferð. Jafnframt er minnt á að lifrarbólga C er sjúkdómur sem veldur alvarlegu heilsutjóni og getur dregið úr ævilíkum. Sjúkdómurinn er nú læknanlegur í langflestum tilfellum með einfaldri skammtíma lyfjagjöf. Slík meðferð ætti að vera aðgengileg í okkar samfélagi. Læknaráð álítur að miklu máli skipti að lausn fáist skjótt á vanda þessa sjúklingahóps. Forvarnir séu efldar og hægt sé að hefja meðferð með nýju lyfjunum undanbragðalaust og koma í veg fyrir að vandamálið haldi áfram að vaxa. Stjórn læknaráðs Landspítalans hvetur heilbrigðisráðherra til að beita öllum þeim úrræðum sem tiltæk eru, þar með talið að í fjáraukalögum eða fjárlögum sé tryggt að unnt sé að efla forvarnir og veita meðferð við læknanlegum og lífshótandi sjúkdómum sem þessum.
Lifrarbólga C er sjúkdómur með útbreiðslu um allan heim og orsakast af veiru (hepatitis C virus). Veiran greindist fyrst árið 1989. Á undanförnum 15 árum hefur lifrarbólga C breiðst mikið út hér á landi, einkum meðal fíkniefnaneytenda sem sprauta sig. Árlega berast sóttvarnalækni 50 - 70 nýjar tilkynningar um sjúkdóminn og um 1100 tilkynningar hafa borist frá 1997. Þá hefur komið í ljós að stór hluti lifrarbólgu eftir blóðgjafir, meðferð með storkuþáttum, mótefnum og öðrum afurðum blóðs, orsakaðist af lifrarbólgu C - veirunni. Allt blóð til blóðgjafa og framleiðslu á blóðhlutum er í dag rannsakað m.t.t. lifrabólgu C.
Smitleiðir
Lifrarbólga C smitast með blóðsmitun. Aðalsmitleiðin er við notkun sprautufíkla á óhreinum nálum og sprautum. Smit á sér afar sjaldan stað við samfarir, þó er notkun smokks við skyndikynni ávallt skynsamleg. Smit móður til barns við fæðingu er einnig fremur sjaldgæft. Lifrarbólgan getur skemmt eða truflað starfsemi lifrarinnar þannig að efni úr blóði skiljist síður út með galli. Meðgöngutíminn, þ.e. tíminn sem líður frá smiti til einkenna af völdum lifrarbólgu C, er um 1-3 mánuðir.
Einkenni
Stór hluti þeirra sem smitast af lifrarbólgu C fá engin augljós einkenni sjúkdómsins. Helstu undanfarandi einkenni gulu eru almenns eðlis með ónotum í efri hluta kviðar, lystarleysi og ógleði. Nokkrum dögum síðar getur komið fram gula og dökknar þá þvag og hægðir lýsast.
Fylgikvillar
Um það bil 80% þeirra sem smitast af lifrarbólgu C fá viðvarandi lifrarbólgu og er viðkomandi þá smitandi árum saman. Hluti þeirra sem eru með viðvarandi lifrabólgu fá eftir mörg ár (20 - 30) skorpulifur og lifrarkrabbamein. Flestir sem sýkjast af lifrarbólgu C fá langvinna sýkingu, sem ekki gengur yfir án meðferðar.
Greining
Lifrarbólga C er greind með blóðprófi. Niðurstöður liggja fyrir innan nokkurra daga frá því að próf er tekið.
Forvarnir
Enn sem komið er er ekki til bóluefni gegn lifrarbólgu C. Aðgengi að hreinum sprautum og nálum fyrir sprautufíkla er mikilvægt. Allt blóð til blóðgjafa og framleiðslu á blóðhlutum er rannsakað m.t.t. lifrarbólgu C. Við skyndikynni er rétt notkun smokka ávallt skynsamleg. Lifrabólga C er tilkynningarskyldur sjúkdómur til sóttvarnalæknis.
Meðferð
Flestir sem sýkjast af lifrarbólgu C fá langvinna sýkingu sem ekki gengur yfir án meðferðar. Á síðustu misserum hafa komið á markað ný lyf sem lækna langflesta af þessum alvarlega sjúkdómi og hafa jafnframt litlar aukaverkanir. Árangur meðferðar fer nokkuð eftir arfgerð veirunnar en sem dæmi má nefna að meðferð í 8-12 vikur leiðir til upprætingar veirunnar í 95-100% tilvika ef um arfgerð 1 er að ræða.