Rannsóknarkjarni Landspítala hefur ekki mælt katekólamín, metanefrín, VMA, HVA og 5-HIAA í þvagi síðastliðin tvö ár. Sýni hafa þennan tíma verið send til útlanda. Frá 28. september 2015 verða þessar mælingar aftur gerðar á rannsóknarkjarna. Upplýsingar um mælingarnar og viðmiðunarmörk er að finna í þjónustubók rannsókna á vef Landspítala.