Kvenfélagið Hringurinn hefur fært fósturgreiningardeild Landspítala nýtt sónartæki til ómskoðunar fóstra og barna í móðurkviði og Thorvaldsensfélagið nýjan ómhaus við tækið. Gefendunum var sýnt tækið í notkun 4. september 2015 og þakkaður hlýhugur fyrir þessar góðu gjafir.
Sónartæknin á meðgöngu er fyrir löngu orðin hluti af greiningu og jafnvel meðferð á meðgöngu og er samofin mæðravernd, í vissum tilvikum út alla meðgönguna. Tækninni fer sífellt fram og er nú hægt að greina ákveðin frávik frá eðlilegu ferli snemma á meðgöngu sem gerir kleift að bregðast við sérhæfðum vandamálum miklu fyrr en áður. Með nýjum tækjum eykst skerpa og skýrleiki myndanna sem síðan eykur líkur á nákvæmari greiningu.