Frá yfirlækni og deildarstjóra á röntgendeild:
Eins og flestum er kunnugt hefur allnokkur hluti geislafræðinga á sjúkrahúsinu látið af störfum. Því miður er enn nokkur óvissa um mönnun röntgendeildar á næstunni.
Við höfum því þurft að skerða þjónustu að einhverju leyti, sér í lagi hvað varðar þá sem ekki eru bráðveikir og bið eftir rannsóknum sjúklinga sem eru utan spítalans hefur lengst.
Við gerum okkur grein fyrir því að þetta ástand bitnar á skjólstæðingum okkar og vinnum því ötullega að ráðstöfunum til þess að gera bragarbót á því. Óljóst er hvenær fullum afköstum verður náð aftur.
Við þökkum fyrir samvinnu ykkar og skilning.
Jón Guðmundsson yfirlæknir & Díana Óskarsdóttir deildarstjóri.