Lionsklúbburinn Víðarr hefur fært legudeild hjarta- og lungnaskurðdeildar 12E á Landspítala Hringbraut að gjöf brjóstholsdren af nýjustu gerð. Á deildinni liggja sjúklingar eftir hjarta- og brjóstholsskurðaðgerðir og/eða brjóstholsáverka. Stór hluti sjúklinganna fær brjóstholsdren og eru þessi tæki því stöðugt í notkun. Brjóstholsdren af þeirri tegund sem nú var gefið er með hleðslurafhlöðu sem gerir sjúklingum kleift að komast fyrr á fætur en ella og flýtir þannig fyrir bata.
Hópur félagsmanna í Lionsklúbbnum Víðarr afhenti gjöfina formlega á hjarta- og lungnaskurðdeild 12E þriðjudaginn 2. september 2015 og var þakkaður höfðingsskapurinn.
Heildarverðmæti tækisins er nærri 700.000 kr.