Tvær nýlegar skýrslur, þ.e. frá Hagfræðistofnun og KPMG, staðfesta enn fyrri áætlanir og endurskoðanir varðandi uppbyggingu á húsnæði fyrir Landspítala við Hringbraut. „Þetta eru meiri háttar tímamót í þeirri óralöngu framhaldssögu sem uppbygging Landspítala við Hringbraut er orðin, “ segir Páll Matthíasson í forstjórapistli um samninginn sem undirritaður var í vikunni við Corpus hópinn um fullnaðarhönnun meðferðarkjarnans við Hringbraut.
Leit
Loka