„Nýr Landspítali við Hringbraut – Götur, veitur, lóð og sjúkrahótel“ er yfirskrift útboðs Framkvæmdasýslu ríkisins fyrir hönd Nýs Landspítala ohf. Framkvæmdin verður á norðurhluta lóðar Landspítala við Hringbraut milli kvennadeildahúss, K-byggingar og Barónsstígs.
Verkið er boðið út í tveimur hlutum, annars vegar götur, veitur og lóð, hins vegar bygging sjúkrahótels sem er hluti af fyrsta áfanga fyrirhugaðrar uppbyggingar Landspítala við Hringbraut.
Tilboð verða opnuð 20. október 2015.