Arion banki hefur fært Landspítala 150 milljónir króna að gjöf sem spítalinn mun nota til kaupa á nýjum sjúkrarúmum og dýnum. Afhendingin fór fram 3. september 2015 á Landspítala Hringbraut. Brýn þörf er innan spítalans á að endurnýja fjölda rúma sem komin eru til ára sinna. Með gjöfinni verður spítalanum gert mögulegt að kaupa 400 ný sjúkrarúm og dýnur á næstu tveimur árum og verða jafnframt gömlu rúmin tekin úr notkun.
Á hverju ári eru legudagar sjúklinga á Landspítala um 220 þúsund og hefur endurnýjun sjúkrarúma af þessari stærðargráðu áhrif á þúsundir einstaklinga, bæði sjúklinga og starfsfólk. Gert er ráð fyrir að fyrstu sjúkrarúmin verði tekin í notkun eftir sex til átta vikur.
Staðan á sjúkrarúmum spítalans var kortlögð í árslok 2013. Í ljós kom að af þeim 800 rúmum sem eru í notkun eru um 400 gömul járnrúm. Járnrúmin eru ýmist fótstigin eða rafknúin en rafvirkjar spítalans hafa séð um að rafvæða hluta af gömlu rúmunum til þess að bæta ástand þeirra. Aðstæður eru sérlega slæmar á geðsviði spítalans en þar er, auk gömlu rúmanna, einnig notast við bedda og svefnsófa fyrir sjúklinga.
Páll Matthíasson
forstjóri Landspítala
,,Við erum afar þakklát Arion banka fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem mun snerta bæði sjúklinga og starfsfólk spítalans. Járnrúmin sem eru mörg hver hálfrar aldar gömul eru úreld og þjóna ekki sama hlutverki og nútíma rúm sem í dag eru lækningatæki. Gömlu rúmin eru of stutt fyrir marga sjúklinga okkar auk þess sem þau þola ekki mikla þyngd. Til viðbótar hefur verið erfitt fyrir starfsfólk að vinna við rúmin þar sem þau eru mörg hver rangskreið og erfitt er að hækka þau og lækka. Gjöf Arion banka mun breyta daglegu lífi sjúklinga og starfsfólks á spítalanum,"
bankastjóri Arion banka
„Við viljum leggja okkar af mörkum til samfélagsins og málefni heilbrigðiskerfisins snerta okkur öll. Við hjá Arion banka höfum í gegnum tíðina stutt við heilbrigðisstofnanir víða um land með tækjagjöfum, þannig að þetta málefni er okkur sérstaklega hugleikið. Nú þegar rekstur og uppbygging bankans gengur vel þá viljum við láta gott af okkur leiða með þessum hætti. Við höfum undanfarið átt samstarf við Landspítala á sviði straumlínustjórnunar og kynnst spítalanum ágætlega. Við fengum fregnir af afleitu ástandi sjúkrarúma og að það kæmi niður á bæði sjúklingum og starfsfólki. Það er okkur því sérstaklega ánægjulegt að geta lagt okkar af mörkum til að bæta líðan sjúklinga og um leið starfsaðstæður starfsfólks spítalans,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Nútíma sjúkrarúm eru lækningatæki sem eru útbúin flóknum búnaði til að mæta ítrustu kröfum um öryggi sjúklinga og aðstöðu starfsfólks. Þau eru rafdrifin með stillingum fyrir mismunandi sjúkdómsástand; stillingu fyrir stöðu vegna endurlífgunar, gráðuboga sem sýnir nákvæman halla á höfðalagi t.d. vegna höfuðáverka og stjórnborði sem gerir sjúklingi kleift að breyta stöðu rúmsins á eigin spýtur. Nútíma sjúkrarúm eru hönnuð til þess að sjúklingur geti verið í sem eðlilegustum stellingum í því. Þau geta breyst í stól og aðstoðað sjúklinginn við að standa á fætur. Öll hreyfing, þrátt fyrir alvarleg veikindi og rúmlegu af þeim sökum, er lykilatriði í að viðhalda vöðvastyrk og hefja endurhæfingu eins snemma og unnt er. Þá eru dýnurnar gríðarlega mikilvægar því þær þurfa að þola mikla þyngd, notkun og þrif. Góðar dýnur stuðla ekki aðeins að betri líðan sjúklinga heldur fyrirbyggja líka sáramyndun sem kostar ómælda peninga í formi sáraumbúða, sýklalyfja, flókinnar sárameðferðar, lengri legutíma auk þjáninga sem slíku fylgir fyrir sjúklinginn.
UPPLÝSINGAMYNDBAND UM NÝJU RÚMIN (Vimeo)
Mynd fyrir ofan: Arion banki gaf Landspítala 400 sjúkrarúm - Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala. Páll heldur á miða sem fannst á gömlu rúmi sem var til sýnis við undirskrift samningsins. Á honum eru skilaboð um að rúmið sé bilað! Ekki einsdæmi að slík skilaboð fylgi gömlu rúmunum á spítalanum.