Samningur um fullnaðarhönnun 58.500 m² meðferðarkjarna Landspítala við Hringbraut hefur verið undirritaður við Corpus hópinn.
Í meðferðarkjarnanum, sem á að tengjast öðrum spítalabyggingum viöð Hringbraut, verður bráðastarfsemi Landspítala sameinuð.
Samningurinn er milli Nýs Landspítala ohf. og Corpus hópsins sem var lægstbjóðandi í verkið í útboði sem fram fór vorið 2015 í samræmi við fjárlög ársins 2015 og lög um skipan opinberra framkvæmda. Corpus bauð tæpa 1,4 milljarða króna í fullnaðarhönnunina.
Samninginn undirrituðu 2. september 2015 í K-byggingu Landspítala þeir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og fyrir hönd Corpus hópsins
Grímur M. Jónasson frá VSÓ ráðgjöf. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, vottuðu samninginn.
Hönnun meðferðarkjarnans mun byggja á fyrirliggjandi forhönnun verksins sem þegar er lokið. Einnig hafa allar skipulagsáætlanir verið samþykktar vegna verkefnisins þ.e. svæðisskipulag, aðalskipulag og deiliskipulag lóðarinnar við Hringbraut.
Í þessari viku býður Nýr Landspítali út verkframkvæmd á sjúkrahóteli sem rís á Hringbrautarlóðinni norðan kvennadeildahúss spítalans. Áætlað er að hefja framkvæmdir þar í byrjun nóvember