Stjórn Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn skal styrkja skurðmeðferð brjóstakrabbameins við Landspítala og verða umsóknir að taka mið af því.
Sjá hér um hlutverk sjóðsins og skipulagsskrá
Upphæð styrks sem sótt er um skal rökstudd. Veittir verða styrkir allt að upphæð 1.200.000.- kr. samtals og ákveður stjórn einstaka styrkupphæðir. Stjórn sjóðsins metur umsóknir og áskilur sér rétt til að leita eftir frekari upplýsingum en fram kunna að koma í umsókn.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi til formanns stjórnar minningarsjóðsins, Hauks Oddssonar, í síðasta lagi 20. september 2015, á tölvupóstfangho@borgun.is