Leit að krabbameinum í brjóstum kvenna er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða reglubundna hópleit þar sem einkennalausum konum er boðin þátttaka samkvæmt ákveðnum leiðbeiningum. Hins vegar er klínísk brjóstaskoðun sem fram fer hjá konum ef niðurstaða hópleitar bendir til þess að nánari skoðunar er þörf eða ef konur hafa sjálfar fundið einkenni frá brjóstum sem þarfnast nánari skoðunar og greiningar. Krabbameinsfélagið ber ábyrgð á framkvæmd þessarar þjónustu, hvort sem um er að ræða hópleit eða klíníska brjóstaskoðun. Með samningnum, sem undirritaður var 23. júlí 2015, felst hins vegar ákvörðun um þá stefnu að ábyrgð á klínískri skoðun verði færð á hendi Landspítala. Tveir röntgenlæknar spítalans annast klíníska skoðun og er nýmæli að annar þeirra verður yfirlæknir leitarstarfsins. Krabbameinsfélagið leggur til annað starfsfólk, húsnæði, aðstöðu og nauðsynlegan búnað.
Krabbameinsleit, hvort sem er hópleit eða klínískar brjóstaskoðanir, munu áfram fara fram í húsnæði Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð og þjónusta sjúkrahússins á Akureyri verður einnig óbreytt.
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, sagði við undirritun samningsins að með honum væri þessi mikilvæga þjónusta bundin í fastari skorður en áður og skýrt kveðið á um aðkomu Landspítala: „Krabbameinsfélagið hefur sinnt þessari þjónustu vel í til fjölda ára en nú er orðið tímabært að Landspítalinn taki yfir klíníska hlutann þannig að þar sé sinnt allri sérhæfðri þjónustu við konur vegna brjóstakrabbameina.“Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir Krabbameinsfélagið hafa unnið geysigott starf í gegnum tíðina sem sé svo sannarlega þakkarvert. Þar sem þessi þjónusta sé afar viðkvæm sé mikilvægt að tryggja til framtíðar samfellu hennar á hendi reyndra sérfræðinga. Það sé einmitt markmiðið með samningnum þar sem stefnt er að því að klíníski hluti þjónustunnar verði færður á ábyrgð Landspítalans.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala sagði við undirritunina að hann teldi samninginn eðlilegt framhald á áralöngu og farsælu samstarfi Krabbameinsfélagsins og spítalans: „Það sem skiptir öllu máli er að veita sjúklingum bestu mögulega þjónustu og að bæta lýðheilsu í landinu. Um það snýst þetta samstarf. Árangurinn hefur til þessa verið mjög góður en markmiðið er að gera enn betur og ég hef fulla trú að það takist.“