Börn Arnar Guðmundssonar hafa fært blóðlækningadeild 11G á Landspítala peningagjöf í minningu föður síns sem lést á deildinni í janúar 2015. Gjöfin var afhent 7. júlí.
Lögð hefur verið þung áhersla á það á deildinni að bæta aðstöðu fyrir sjúklinga og aðstandendur og kemur gjöfin sér mjög vel í því. Fyrir það er starfsfólk blóðlækningadeildar 11G þakklátt.
Á myndinni eru börn og tengdabörn Arnars ásamt starfsfólki deildarinnar.