Vigdís Stefánsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri eldhúss og matsala á Landspítala frá 1. júlí 2015 til 31. maí 2018.
Vigdís hefur starfað hjá spítalanum um 15 ára skeið sem sérfræðingur og stjórnandi mismunandi eininga innan eldhússins, m.a. leyst deildarstjóra af þrisvar á tímabilinu 2000-2015. Vigdís er með BSc gráðu í næringar- og rekstrarfræðum frá Háskólanum í Gautaborg ásamt diplóma í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands og framhaldsmenntun í heilsuhagfræði frá Háskóla Íslands. Einnig hefur hún sótt framhaldsmenntun í lýðheilsuháskólanum Nordic School of Public Health.