Rebekkustúkan nr. 4, Sigríður og Rebekkustúkan nr. 7 Þorgerður hafa fært bráðamóttökunni á Landspítala Fossvogi að gjöf sjálfvirkt hjartahnoðtæki. Tækið kemur í stað eins manns við endurlífgun með hjartahnoði.
Hilmar Kjartansson, yfirlæknir bráðalækninga: ,,Það er mikið ánægjuefni fyrir bráðamóttökuna að taka við jafn höfðinglegri gjöf og hjartahnoðtækinu Lucas. Þetta tæki er mikilvægur hlekkur í þeirri keðju að veita sem besta meðferð fyrir sjúklinga sem eru í hjartastoppi. Tækið veitir jafnt og árangursríkt hjartahnoð og hefur mikið að segja þegar verið er að veita jafnmikilvæga lífsbjargandi meðferð. Við erum ákaflega þakklát fyrir að fá tækið gefið og það er öruggt að það á eftir að koma að góðum notum í framtíðinni á bráðamóttökunni í Fossvogi."