Bónus hefur styrkt starfsemi BUGL, barna- og unglingageðdeildar Landspítala, um þrjár milljónir króna. Styrkurinn var afhentur 10. júní 2015. Um leið afhenti Bónus styrki til Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra, og til sumarbúða í Reykjadal í Mosfellsbæ fyrir fötluð börn.