Reynir Arngrímsson formaður læknaráðs
Reynir Arngrímsson erfðalæknir var kjörinn formaður læknaráðs Landspítala á aðalfundi þess 29. maí 2015, Ólafur Helgi Samúelsson varaformaður. Á aðalfundinum var Sigurður Kristjánsson kjörinn formaður stöðunefndar og Birna G. Þórðardóttir formaður valnefndar.