„Þegar á reynir sést innri maður og það sýndi sig í gær, fimmtudag, þegar tilkynnt var um alvarlegt slys á Hellissandi. Ljóst var að þegar í stað þurfti að auka verulega við þann mannskap sem í húsunum var; á myndgreiningu, bráðamóttöku, svæfingu, vöknun, gjörgæslu og jafnvel víðar. Um 20 starfsmenn, þar af margir í verkfalli, voru kallaðir út með örskömmum fyrirvara. Ekki stóð á viðbrögðum starfsfólks sem var komið til starfa á örskotsstund. Þannig fréttist af fundi geislafræðinga, sem sátu og réðu ráðum sínum í erfiðu verkfalli, en komu hlaupandi til starfa.“
Leit
Loka