Fjórir af hverjum fimm Íslendingum vilja nýjan Landspítali á næstu árum, samkvæmt könnun Maskínurannsókna.
Aðeins 6% reyndust vera á móti byggingunni. Könnunin var gerð um mánaðamót apríl og maí og þátttakendur voru 849 á aldrinum 18 til 75 ára og af öllu landinu. Meira en helmingur þátttakenda var sáttur við staðsetningu nýbygginga við Hringbraut, um 26 prósent voru á móti.
Mikill stuðningur við byggingu nýs Landspítala