Ein af stjörnum þáttanna „Með okkar augum“, Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, sýndi á sér nýja hlið og flutti skemmtilega efnisskrá ásamt tveimur öðrum söngkonum, þeim Hildigunni Einarsdóttur og Þórunni Elínu Pétursdóttur, á hádegistónleikum í Laugarneskirkju 10. apríl 2015. Hljómsveitina skipuðu Þórunn Harðardóttir á víólu, Lilja Eggertsdóttir á píanó og Birgir Bragason á kontrabassa.
Á hádegistónleikunum voru flutt lög eftir Sigfús Halldórsson.
Allur ágóði tónleikanna rann til líknardeildar Landspítala Kópavogi.
Mynd: Þórunn Elín, Steinunn Ása og Lilja afhenda Dóru Halldórsdóttur, deildarstjóra líknardeildar, gjöfina.