Lind, félag um meðfædda ónæmisgalla stóð fyrir uppákomu á Barnaspítala Hringsins 22. apríl 2015 í tilefni af alþjóðlegum mánuði einstaklinga með meðfædda ónæmisgalla. Á Íslandi eru það um það bil 10 fullorðnir og 10 börn. Blöðrum var sleppt fyrir utan Barnaspítalann til að vekja athygli á þessum málaflokki og í kjölfarið var boðið upp á veitingar og skemmtun þar sem Íþróttaálfurinn og Friðrik Dór skemmtu við góðar undirtektir.
Leit
Loka