Stjórn læknaráðs Landspítala ályktaði 13. apríl 2015 um verkfall BHM
Stjórn læknaráðs Landspítala lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu mála á spítalanum vegna yfirstandandi verkfalls aðildafélaga BHM. Störf háskólmenntaðra starfsmanna spítalans eru nauðsynleg spítalanum og veldur yfirstandandi verkfall alvarlegri röskun á starfsemi hans. Það ástand getur klárlega skapað ógn við öryggi sjúklinga.
Læknaráð Landspítala hvetur samningsaðila að ná sáttum sem fyrst svo starfsemi spítalans og þjónusta við sjúklinga þess geti haldið áfram að fullu.