Blóðbankinn sinnir blóðbankaþjónustu á landsvísu.
Í yfirvofandi verkfalli verður lögð megináhersla á eftirfarandi:
Blóðbankinn mun í yfirvofandi verkfalli tryggja nauðsynlegar öryggisbirgðir blóðhluta fyrir bráðveika sjúklinga og alla sem þurfa nauðsynlega á blóðhlutum að halda.
Í yfirvofandi verkfalli verður lögð megináhersla á eftirfarandi:
- Afgreiða blóðhluta til bráðveikra sjúklinga og þeirra sem þurfa nauðsynlega á blóðhlutum að halda. Vinna blóðhluta til að viðhalda öryggisbirgðum blóðhluta í Blóðbankanum; jafnt á Akureyri sem í Reykjavík.
- Með gildandi undanþágulistum vegna starfsemi Blóðbankans er tryggt að þessu hlutverki sé sinnt og öryggi bráðveikra sjúklinga og annarra sem þurfa nauðsynlega á blóðhlutum að halda sé tryggt í hvívetna.
- Ekki er mögulegt að sinna rannsóknum eða afgreiða blóðhluta til valaðgerða enda myndi það ganga óhóflega á öryggisbirgðir blóðhluta í landinu.
- Mikilvægt er að þetta sé virt í hvívetna, ella má gera ráð fyrir að það skapaði alvarlega stöðu fyrir bráðveika sjúklinga.
- Margvísleg önnur starfsemi Blóðbankans liggur niðri meðan á verkfalli stendur s.s. vefjaflokkun, mótefnagreining fyrir mæðraeftirlit og sérstakar rannsóknir sem ekki styðja bráðahlutverk bankans.
- Ef þörf er á stofnfrumusöfnun eða inngjöf stofnfrumna mun verða sótt um undanþágur fyrir störf sérhæfðra starfsmanna sem sinna þeim verkþáttum.
- Með öllum tiltækum ráðum verður það tryggt að nauðsynlegar öryggisbirgðir séu til staðar á hverjum tíma og öryggi sjúklinga ætíð haft að leiðarljósi.