Guðný Helga Herbertsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri nýrrar samskiptadeildar Landspítala.
Deildin mun innleiða nýja stefnu um samskipta- og kynningarmál sem og vinna að miðlun upplýsinga um starfsemi spítalans.
Deildin mun innleiða nýja stefnu um samskipta- og kynningarmál sem og vinna að miðlun upplýsinga um starfsemi spítalans.
Guðný Helga hefur frá árinu 2011 starfað sem upplýsingafulltrúi Íslandsbanka og leitt stefnumótun bankans í samfélagsábyrgð. Þar áður starfaði hún sem blaðamaður hjá 365 miðlum. Hún er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í lögum og viðskiptum Evrópusambandsins frá Viðskiptaháskólanum í Árósum.
Gert er ráð fyrir að Guðný Helga hefji störf um miðjan mai.