Nokkrir liðsmenn hins heimsfræga sýningar- og körfuboltaliðs Harlem Globetrotters heimsóttu börn á Barnaspítala Hringsins 24. mars 2014 og léku listir sínar fyrir þau og með þeim. Gestirnir gerðu mikla lukku og börnin urðu himinsæl að fá af sér mynd með þeim.
Harlmen Globetrotters er með sýningar í Schenken höllinni á Ásvöllum í Hafnarfirði 24. og 25 mars. Þessir körfuboltasnillingar hafa fjórum sinnum áður verið með sýningar hér á landi og alltaf uppselt á þær.