Sigrún Knútsdóttir, sjúkraþjálfari á Landspítala, var gerð að heiðursfélaga Félags sjúkraþjálfara (FS) á degi sjúkraþjálfara sem haldinn var í Hörpu 6. mars 2015.
Sigrún á að baki langan og farsælan feril í leiðtoga- og frumkvöðlastarfi meðal sjúkraþjálfara hér á landi og í alþjóðlegu samstarfi sjúkraþjálfara.