Haustið 2014 var Óskar Sigurðsson sjúklingur á deildinni og hann lést þar í nóvember. Brynja Kristjánsson, eiginkona Óskars, fann til þess þá að aðbúnaður sjúklinga, starfsfólks og gesta á deildinni mætti batna á ýmsan hátt og hún lét ekki þar við sitja. Einn daginn meðan Óskar lá á deildinni mættu þangað menn með tvo La-Z-Boy stóla frá henni að gjöf. Brynja bætti svo um betur og gaf taugalækningadeildinni sjö sjónvarpstæki, með hjálp góðra vina, ættingja og Sjónvarpsmiðstöðvarinnar. Tækin eru af gerðinni United og sonur hennar, Einar Júlíus, setti tækin upp. Formleg afhending sjónvarpstækjanna var 6. mars 2015 þar sem Brynju og fölskyldunni var þakkað mikilsvert framlag til að bæta aðbúnað á taugalækningadeild B2.
Gaf taugalækningadeild B2 sjö sjónvarpstæki
Allar sjúkrastofurnar 12 á taugalækningadeild B2 í Fossvogi eru nú búnar nýjum eða nýlegum sjónvarpstækjum en þar hafa gömul túbutæki verið áberandi til þessa.