Sæll, viltu birta þetta á heimasíðu og facebook síðu LSH. Má alveg laga orðalagið ef þarf.
Kv, Margrét Ásgeirsdóttir deildarstjóri skilunardeildar
Félag nýrnasjúkra hefur fært skilunardeildinni á Landspítala að gjöf tvö vatnshreinsitæki. Félagið safnaði fé til kaupa á tækinu meðal annars með áheitum í Reykjavíkurmaraþoninu, auk þess sem ýmis félagasamtök um allt land lögðu til fé.
Vatnshreinsitæki eru nauðsynleg með blóðskilunarvélum við blóðskilun utan skilunardeildar Landspítala. Þau nýtast og eiga eftir að koma að góðu gagni á blóðskilunareiningum sem verið er að opna á sjúkrahúsinu á Selfossi og Akureyri. Svo er Félagi nýrnasjúkra fyrir að þakka en það hefur stutt dyggilega við skilunardeildina í mörg ár.