Herdís Ástráðsdóttir, deildarstjóri á speglun 11D/A3, lætur af störfum sem deildarstjóri eftir áratuga farsælt starf á Landspítala föstudaginn 27. febrúar 2015. Málþing henni til heiðurs verður haldið í Ásnum á Landspítala Hringbraut þann dag kl. 13:00-15:00.
Dagskrá
Litið í baksýnisspegilinn
Anna Soffía Guðmundsdóttir
Vinur og vinnufélagi
Einar Oddsson
Víða liggja spor
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir
Horft til framtíðar
Sunna Guðlaugsdóttir
Veitingar að dagskrá lokinni