Hringur ísbjörn fór mikinn þegar hann leit inn til barnanna á Barnaspítala Hringsins á öskudeginum 17. febrúar 2015. Þessi góðviljaði ísbjörn á það til að koma og stytta börnunum á barnaspítalanum stundirnar og er alltaf vel fagnað. Núna var Hringur svolítið „skreyttur“ í tilefni öskudagsins en hann var nú ekki einn um það. Ýmsir höfðu farið í dulargervi í tilefni dagsins.
Það var boðið upp á bíósýningu á öskudeginum með tækjum sem tækjaleigan Sonik lánaði og Nói-Sírus gaf börnunum sælgæti.