Nýjum Landspítala ohf. hefur verið falið að hefja undirbúning útboðs á fullnaðarhönnun meðferðarkjarna á lóð Landspítala Hringbraut. Nýjum Landspítala ohf. hefur einnig verið falið að ljúka fullnaðarhönnun sjúkrahótels á sama stað og bjóða út verkframkvæmdir við gatna- og lóðagerð sjúkrahótels ásamt byggingu þess.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir þetta ánægjuleg tímamót: „Ég hef trú á að við stöndum nú á mikilvægum tímamótum og sérstök eftirvænting þegar verkframkvæmdir hefjast við Hringbrautina nú í sumar, sem lengi hefur verið beðið eftir.“