Þórhildur Höskuldsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri speglunardeildar Landspítala. Hún útskrifaðist með BS gráðu í hjúkrun frá Háskólanum á Akureyri árið 2001. Hún hóf starfsferilinn á bráðamóttöku FSA en réð sig á kvenlækningadeild 21A árið 2006. Þórhildur hefur starfað á speglunardeild síðan 2008 og hefur síðastliðið ár leyst deildarstjóra af til skamms tíma í senn.
Leit
Loka