Kvenfélagið Hringurinn hefur fært Landspítala 20,6 milljónir króna til tækjakaupa. Fósturgreiningardeild fékk 15 milljónir króna til að kaupa nýtt fósturgreiningartæki og hjarta- og lungnaskurðlækningadeild tvo styrki til kaupa á tveimur tækjum. Annars vegar tæki sem gerir kleift að hreinsa blóð sem fellur til við aðgerðir og gefa það aftur og hins vegar tæki sem mælir storku blóðsins, sérstaklega heparin.
Leit
Loka