Elín Ýrr Halldórsdóttir hefur verið settur deildarstjóri yfir dauðhreinsunardeildinni á Tunguhálsi.
Elín Ýrr útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla íslands 1981. Hún lauk viðbótarnámi í skurðhjúkrun frá Nýja hjúkrunarskólanum 1986 og BS námi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Elín Ýrr hefur starfað á skurðstofum á Landspítala Hringbraut frá árinu 1983 og meðal annars leyst af deildarstjóra og aðgerðarstjóra ásamt því að hafa verið teymisstjóri í hjartateyminu til margra ára.