Félag áhugafólks um hryggrauf / klofin hrygg hefur fært þvagfæralækningadeild 11A á Landspítala að gjöf nýtt og veglegt sjónvarpstæki ásamt nýju barnaefni. Þetta er kærkomin gjöf sem leysir af hólmi gamla sjónvarpið og vídeótækið sem börn hafa notað til afþreyingar meðan þau eru í rannsóknum á deildinni.